Dagurinn í dag var á morgun í gær
Síður
28.09.2007 13:59:06 / mysla2006

tölvan aftur í viðgerð :(

talvan mín er farin aftur í viðgerð /&$/&$)=()()(= ég held að Svenni í bt sé orðin soldið þreyttur á mér. ég er alltaf að biðja um tölvuna mína hvað er að frétta af henni og sona. en ef hún kemur aftur eins og hún var þá á ég að fá nýja tölvu. en nóg um það. ég var víst löngu búin að lofa mynd af hljómsveitini 20%. þannig hér kemur hún

oki efst til  vinstri er Viðar og við hliðina á honum er Gutti. Síðan neðst til vinstri er hann Siggi og við hliðina á honum er Adam.

Viðar : trommari

Gutti : bassaleikari

Siggi : Söngvari og gítarleikari

Adam : Gítarleikari 

Síðan er ætluninn að panta hensonpeysur með nafni hljómsveitarinnar ef þið viljið eina endilega hafa samband. t.d. með því að commenta!!! ;)

 

ekki meira í bili við sjáumst ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 11:15:23 / mysla2006

söngvakeppni.......

Jæja þá er loksins komið að söngvakeppnini hér í Fsu. Skráningar eru hafðar. Viðar, Siggi, Gutti og Adam eru í hljómsveitini 20% púðursykur. .Þeir ákváðu að skrá sig og senda frumsamið lag sem mér persónulega finnst gg flott. það er bæði til íslensk og ensk útgáfa af laginu. þeir hafa flutt það áður á útihátíð sem var haldin í Ásaskóla um verslunarmannahelgina. það gekk rosalega vel. þetta verður bara æðislegt og ef þú þekkir þessa stráka er það bara skylda að mæta ;) og hlusta á þetta æðislega frumsamda lag.

Annars gengur allt sinn vanagang hérna í skólanum. það hefur ekkert voðalega skrautlegt gerst. kórinn er ennþá á fullu að safna fyrir danmerkurferðini og núna er u.þ.b mánuður í atburðinn.

meira er það ekki í bili ;) við heyrumst.


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 11:57:31 / mysla2006

loksins er maður búin að fá tölvuna

loksins er maður búin að fá tölvuna aftur. þetta var orðið rosalega mikið vesen í sambandi við skólan þegar komið var að því að skila verkefnum. ég átti að skila íslensku ritgerð og ég þurfti að fá að semja hana í tölvuni hans Viðars og síðan þurfti ég að klára hana í tölvuni hans Sigga og prenta hana svo út hér í skólanum. talandi um vesen. Síðan núna er tövan hans Viðars líka farinn í viðgerð, síðan þarf tölvan hennar hjördísar líklegast að fara í viðgerð útaf nýja stjórnkervinu ( Vista ) sem hægir á öllu þannig að ekkert er hægt að gera í tölvuni. það er eins og það sé æði fyrir því að senda tölvurnar sínar í viðgerð.

talandi um æði. af einhverjum asnalegum ástæðum er í tísku að vera handleggsbrotin eða á hækjum hér í Fsu. það eru um það bil 5-6 manneskjur á hækju hérna. þótt að ég sé kölluð tískufrík þá er þetta tíska sem ég ætla ekki að fylgja. ég kýs að geta hreyft mig á eðlilegan hátt. :P 

Í sambandi við önnina þá er hún komin vel af stað nema í stærðfræðini. Ég er með þannig stærðfræðikennara að maður skilur ekkert hvað hann er að reyna að segja. Sumir hafa hæfileikan til að útskýra en sumir ekki. allavega ég fór til námsráðgjafa og það á að redda þessu ;)

það er ekki meira að frétta í bili.

P.S. vantar ykkur klósettpappír ??????? endilega styrkja kórin í Fsu sem er að safna fyrir danmerkurferð ;) 48 rúllur á 3000 kr. Ef þið ákveðið að vera svo góð að styrkja okkur hafið þá samband í (848-8633)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 14:45:15 / mysla2006

óvænt Busunn !!!!!!!!!!

Allir héldu að busunin yrði á föstudaginn eins og venjan er. Allt í einu í dag byrjaði brjáluð tónlist og böðlarnir gengu í stofur og ráku busana út. við eldri nemendur áttum að fara út og þar biðu okkar rútur. Viðar var talin vera busi og böðullinn fór í kerfi þegar Viðar sagðist ekki vera busi :D:D:D . Við sáum rosalega lítið af busunini því það var farið með okkur eldri í burtu á meðan. Busarnir komu eftir á. Busaballið verður síðan um helgina og Páll Óskar verður DJ það er spurning hvort maður kíkir???

en allavega ég heyri í ykkur ;)  


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 13:36:14 / mysla2006

ný byrjun

jæja núna er skólin byrjaður aftur og það er yndislegt mér fannstw sumarfríið orðið gott.

ég efast ekki um að þessi önn verður jafn æðisleg og sú seinasta ef ekki betri.

 

það er komið rosalega mikið af nýju fólki á borðið og líkar mér rosalega velk við það. það er ein stelpa sem heitir kata hún fór sem skiptinemin til bandaríkjana og síðan er það Harpa G sem fór til Danmörku einni sem skiptinemi. síðan er Matthildur sem þekkti Sölku einhvertíman útí Danmörku. og síðan auðvitað er hún Hjördís komin aftur frá Austurríki :D

en í þetta skipti ætla ég ekki að gera nein loforð um að vera dugleg að blogga, við sjáum bara hvernig þetta fer ;) kannski verð ég duglegri núna þegar ég hef ekki lofað neinu :)  

 

við heyrumst ;)  


» 6 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill